þriðjudagur, ágúst 22, 2006

"Look at the size of his head, its like an orange on a toothpick"


Á milli þess sem ég dvel ofan í kössum og inni í skápum reyni ég að gefa mér tíma til að kveðja vinina og gær eyddum við Æskó-skvísurnar kveldinu saman. Ótrúlega skemmtilegt kvöld, mikið hlegið, góður matur snæddur, hlegið meira og skrafað og planað...og spólað í gegnum So I married an axe murderer með Mike Myers. Sú mynd er alger snilld, sérstaklega skoski pabbinn...kannski maður rekist á svona karakter í Edinborg ? Gamlan fír sem hlustar á Bay City Rollers á laugardagskvöldum á meðan hann dustar rykið af "The scottish wall of fame"...og syngur "If you think I´m sexy" við sekkjapípuundirleik.

Jámm, ég vissi nú að ég ætti góðar vinkonar krútturnar mínar, takk fyrir frábært kvöld :* Og já ég held að það verði geðveikt stuð í Glasgow í nóvember... "Lets get pisssssddd!!!"

Kveð í bili...kassarnir kalla !

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

o je magga mín það verður sko MIKIÐ fjör þegar við mætum skvísurnar í spandex göllunum okkar með innkaupavagninn með hihi það verður slökkvutæki með á visa kortið....og takk fyrir alla kossana í gær ha ég já þú..kveðja Elva

10:11 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home