fimmtudagur, nóvember 23, 2006

Tómlegt í kotinu...

Þá erum við aftur orðin bara þrjú í kotinu. Svoldið tómlegt eftir að vera hérna sjö að hafa það kósí saman....en sem betur fer er stutt til jóla. Mamma og pabbi voru hér í rúmlega viku og fóru á þriðjudaginn og Stína og Emba Ýr komu frá Danmörku og fóru í gær. Frábært að þær skyldu geta komið á sama tíma og mútta og pápi :)

Við gerðum nú margt og mikið á þessum tíma en auðvitað langaði manni að gera miklu meira og sýna allt sem hér er að sjá. En það setur nú svoldið strik í reikninginn að nú er vetur og byrjar að dimma upp úr fimm. Við skoðuðum kastalann, míluna, snekkjuna hennar Betu drollu og svo vorum við með bílaleigubíl í nokkra daga...sem var nú alger lúxus :) Frábært að rúnta svona um bæinn og hvíla sig á strætóferðum og Arnar stóð sig vel í vinstri umferðinni...held hann hafi bara einu sinni bölvað einhverju fífli sem kom á móti honum "öfugu meginn" ;). Við fórum t.d. til St. Andrews, sem er háskólabær í rúmlega klukkutíma fjarlægð. Ofsalega fallegur bær með flottri strönd og gömlum minjum...kom eiginlega á óvart hvað hann er flottur...ætla pottþétt þangað aftur. Þá var líka bara mjög gaman að keyra þangað og sjá "the countryside". Við keyrðum líka upp á Carlton Hill en þar er mjög flott útsýni yfir borgina og einnig yfir Arthurs Seat.

Það var svoldið skrýtið að setjast upp í bíl og geta rúntað svona um...þurfa ekki að taka strætó í búðirnar og þess háttar, þetta vakti pínu upp í manni lúxuspúkann, sem var búinn að vera í dvala. Ég stóð mig að því að vera farin að hugleiða hvort við ættum ekki bara að fá okkur bíl á meðan við værum hérna. Við vorum orðin mjög vön því að taka bara bussen eða ganga og satt best að segja var enginn söknuður eftir bíl...fyrr en núna ;) En það líður án efa hjá og bussen verður aftur uppáhalds-fararskjótinn okkar. Ég áttaði mig samt bara á því um daginn hvað maður hafði breyst mikið með þetta strætómál...þegar Óli bró lét þau orð falla að hann hefði ekki átt von á að lifa þann dag af að Magga systir hans væri farin að ferðast með almenningsvögnum, hehe. Jámmm....svona er maður með mikla aðlögunarhæfni ;) og nú þarf hún að nýtast í að aðlagast aftur frá bílferðum :)

Já allt tekur víst enda og nú eru allir farnir á sinn stað. Stutt þar til við hittum foreldrana en spurning hvenær við hittum danina okkar aftur :( Og ekki bætti úr skák að þær mæðgur voru veikar með ælupest þegar við kvöddumst...úff, ekki gaman að eiga flug og millilendingu fyrir höndum í svoleiðis ástandi, en það hafðist hjá þeim.

En já...pestarstússið heldur áfram því Arnar krækti sér í ælupestina og nú bíðum við Elvar og vonum að við sleppum....cross my fingers ;)

Annars er ég mest hissa á því hvað tíminn æðir áfram...nóvember að verða búinn og jólin nálgast á ógnarhraða. Það er ekki laust við að það sé kominn smá fiðringur í mann yfir jólunum og í dag á að kveikja á öllum jólaljósunum hér í bæ og opna The Winter Festival. Það verður æðislegt að rölta niður í bæ og upplifa jólastemmninguna hérna. Og ég ætla að vona að mér takist að njóta þess, á eftir að skrifa tvær ritgerðir og kominn tími til að bretta upp ermarnar, á að skila einni 15. des og hinni í janúar. Er samt að láta mig dreyma um að klára báðar fyrir jól og geta notið þess að vera í jólafríi á Íslandi....njóta þess að hitta vini og vandamenn...ahhh, ég er sko farin að hlakka til.

En nú er víst best að snúa sér að erma-uppbrettingum og hefja ritgerðarsmíðarnar. Síðustu tímarnir eru í næstu viku og desember því allur frátekin í skrifelsi....og jólastúss þar sem það kemst að ;) Ég reyni nú kannski að láta heyra eitthvað í mér inn á milli...droppa inn nokkrum gullkornum af minni alkunnu snilld, múahahaha...ha ?

Until then, kanúdels :*

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæææ Magga mín, gott að sjá að þú ert komin í bloggið aftur :D
Ohhh takk fyrir spjallið í gær!!! Ég var gjörsamlega komin til þín í anda með kortið á lofti í H&M ;) hehe. Vonandi eftir áramót, við setjumst niður og plönum kannski um jólin saman :p
Já vertu nú dugleg í ritgerðasmíðinni mín kæra svo þú getir slakað verulega á um jólin og ég hitt þig sem mest ;)
Knús og kossar yfir hafið til ykkar allra elskurnar mínar.
þín Rebenúííí,

2:02 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

elskan mín velkomin aftur til menningar,bvar farin að hafa miklar áhyggjur en vissi svosum að þú værir að dullast með familíuni!!nú er bara stut í heimkomu,,,viviivvei það verður gott að knúsa ykkur..já svo þurfum við að fara að ákveða jólabuffeið milli jóla og nýárs!!kv Elva

8:04 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

It´s ALIVE.... Djók.. gaman að heyra frá þér aftur Magga mín, gott þið gátuð átt góðar familýstundir saman. Verðum náttúrulega að plana hitting um jólin þegar þið komið, jólabingó eða eitthvað. Knús og kossar, Sóla

8:45 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að heyra aftur frá þér Mags. Er stundum að hugsa að hoppa bara upp í vél og koma aftur í heimsókn, ummmmmmmmmmm
Það var ekkert smá gaman að koma í heimsókn. Nú getur maður betur gert sér í hugalund hvað þið eruð að sýsla.
Hlakka til að hitta ykkur fljótlega
Jólaknús
Dagga
p.s. Segðu Elvari að ég sé að leita að bíói fyrir okkur :)

11:21 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home